Eitt lítið "eftiráramótablogg"

Jæja, árið 2008 er liðið og mér eins og eflaust svo mörgum öðrum verður hugsað til þeirra stórbrotnu afreka sem átti að vinna á árinu. Rykfallinn tjekklistinn stílaður á árið 2008 er dreginn upp úr kommóðunni og í leyni rennt yfir öll markmiðin sem virtust svo raunhæf og flott í mókinu 1. Janúar.

Heilir 365 dagar! hvert fóru þeir? Til mikillar furðu get ég ekki strikað yfir nema brotabrot af því sem er á listanum. Blaðið er því vandlega krumpað saman og því hent í ruslatunnuna þvínæst lufsast ég út í bókabúð og útbý nýjan lista á nýju blaði sem ég svo lofa sjálfri mér í gríð og erg að reyna að standa betur við.

En hvað er það annars sem árið 2008 skilur eftir sig? Þegar ég hugsa yfir farin veg þá sé ég mér þó til mikillar undrunar að á árinu hefur ýmislegt spennandi átt sér stað.

·         Í byrjun árs tók ég það stóra skref að „hætta“ loksins (og nú veit ég að Freyja á eftir að hlæja) að vinna fulla vinnu í Blikaás, ákvörðunin hafði verið uppi á borði í svolítinn tíma en þegar kona eins og ég, með atvinnuskiptipersónuleikaröskunarfælni á háu stigi á í hlut þá dró þetta alt saman dálítinn dilk á eftir sér. Í janúar byrjaði ég því í fullri vinnu á leikskólanum Kjarrinu, en ég hafði áður verið þar hálfan daginn.

·          Þann 23. Mars átti Stella amma 65 ára afmæli. Við fjölskyldan fórum af tilefni afmælisins öll saman í sumarbústað rétt f. utan Hveragerði og áttum góða stund saman.

                                              myndir 055

·         1.-5. Maí skelltum við samstarfskonurnar á Kjarrinu okkur í mennta og menningarferð til Þýskalandsins góða, flestar vissar um það að komið væri að kveðjustund og við færum allar í sitthvora áttina í lok maí þegar leikskólinn lokaði.

      82                  163

·         1. Júní gerðist hið óumflýjanlega, ég fór aftur í fulla vinnu í Blikaásnum.

·         11.-25. Júní fórum við stórfjölskyldan öll saman til Mallorca til að fagna ýmsum merkum áföngum í lífi ömmu og afa, amma varð 65 ára, afi 70 ára og þau áttu 40 ára brúðkaupsafmæli.

     Mallorca júni 2008 035                Mallorca júni 2008 047

·         Í byrjun júlí fór ég svo ásamt Freyju vinkonu minni og fjölskyldunni hennar í Ameríkureisu. Við slökuðum á í Cape Cod í nágrenni Boston og heimsóttum að sjálfssögðu borgina sjálfa og tókum nokkrar syrpur í verslununum þar. Heimsóttum New York í einn dag og fórum m.a. VIP upp í Empire state bygginguna og borðuðum á Time Squere og fórum á OI ráðstefnu í Washington.

     Ameríka 2008 115               Þyrst í Mohito

·         Í byrjun ágúst byrjaði ég aftur að vinna á Kjarrinu ásamt flestum af gömlu starfsmönnunum og nokkrum nýjum. Fyrst var ég í hlutastarfi en fór síðan í fullt starf upp úr miðjum október.

     september 08 002               jólalhalðborð 021

·         Þann 20 ágúst varð amma mín í Garðinum 70 ára, við fjölskyldan fögnuðum saman í sumarbústað fyrir vestan.

·         Í september hóf ég stund á nám við Guðfræðideild Háskóla íslands, í október hætti  ég nánast í náminu með pompi og prakt, ég var bara svo slæm útaf Jesú.

·         Þann 12. Október breyttist líf mitt um aldur og ævi er ég náði 25 ára aldrinum, gamla konan ..

·         20. Nóvember fagnaði Högni, næstumþvípabbi minn 50 ára afmælinu sínu, hver hefði trúað því að Tiger-inn á fjöllum væri orðin svona gamall, hann ber það nú ekki með sér blessaður, alltaf jafn unglegur.

                                            edda og högni

·         27. Nóvember varð afi minn í Keflavík 70 ára, hann eyddi afmælisdeginum á sólbekk á Kanarí með bjórinn í annarri og ömmu í hinni..

                                             myndir 037

·         Ég man ekki eftir neinum sérstökum merkisatburðum í Desembermánuði, ég skrapp á jólahlaðborð í Viðey með leikskólanum, fór eins og hver annar íslendingur 150 sinnum í smáralindina í jólagjafahugleiðingum og borðaði yfir mig af rjúpum og ömmufrómas á aðfangadagskvöld.

 

Árið einkennist sumsé af stórafmælum, utanferðum og já.. stórafmælum.

Gleðilegt ár

Kv. Heiða


en á morgun kemur sólin, hvað verður um skýin þá?

 

Októbermánuður er genginn í garð og haustið skartar sínu fegursta hér í sveitasælunni í Vaðnesinu. Við Freyja vinkona skelltum okkur í bústaðinn í þeim tilgangi að ná upp lærdómnum sem einhverra hluta vegna hefur setið dálítið á hakanum hjá okkur báðum. Dagurinn í dag hefur þar af leiðandi að mestu leiti farið í lestur og glósugerð.

Í kvöld tókum við okkur þó pásu frá þrældómnum og ég skellti mér í heita pottinn en Freyja lá undir sæng í hjá mér í góða veðrinu. Það var svo stjörnubjart og fallegt að við ætluðum aldrei að tíma að fara inn aftur. í fyrramálið ætlum við að taka daginn snemma, og læra aðeins meira, ekki veitir af. klukkan tvö tökum við okkur þó hlé því ætlunin er að skella sér í messu í Sólheimakirkju á Grímsnesi.

Annars er ég bara alltaf í skólanum og að vinna. Er ennþá að vinna  á leikskólanum Kjarrinu í kópavogi, frá kl: 13:00-17:00 alla daga og líkar það mjög vel. Við byrjuðum flestar að vinna aftur hjá nýjum rekstraraðila, Jóhönnu Thorsteinson leik-og grunnskólakennara sem nú er leikskólastjóri hjá okkur, flott kona með skemmtilegar breytingar í huga.

það er best að koma sér í háttinn, Freyja vekur mig snemma með kennaraprikið í annarri

hafið það gott það sem eftir lifir helgar

kv. Heiða


we either make ourselves miserable, or we make ourselves strong. The amount of work is the same.

Ég er búin að vera mjög svo upptekin ung kona þegar það kemur að því að ég ætla finna upp á einhverju til að "blogga" um. Ekki það að ég hafi ekki frá neinu að segja,  því ég hef ALLTAF einhvað að segjaTounge.

Það er t.d. alveg komin rúm vika frá því ég kom heim frá USA. Ferðin var stórkostleg í alla staði, ekki að öðru að spyrja þegar Freyja og fjölskyldan hennar á í hlut, þau eru svo frábær. Ég ætla að benda ykkur á bloggið hennar Freyju vinkonu (www.almaogfreyja.blog.is), því þar getið þið lesið ykkur aðeins til um ráðstefnuna o.fl. Annars er ég búin að henda nokkrum myndum inn og getið þið skoðað þær hér að neðan.

Seinasta föstudag hitti ég svo Ara og Láru, (litlu) börnin mín frá Þýskalandi. Við fórum saman að gefa hestunum brauð og keyptum okkur ís í góða veðrinu og svo var mér boðið í mat til ömmu þeirra og afa. Það var alveg frábært að hitta þau, það er svo frábært að halda sambandinu við þau og að þau þekki mig þó þau hitti mig nánast aldrei.

sl mánudag byrjaði ég svo að vinna aftur á Kjarrinu. Þar hafa orðið þónokkrar breytingar, til hins betra sýnist mér amk svona við fyrstu sýn. Ótrúlega gaman að hitta gömlurnar mínar aftur og að sjálfssögðu kynnast nýjum líka

annars er ég búin að vera á Blikaásnum alla helgina, óg verð að vinna þar líka næstu 2 vikurnar og svo byrjar skólinn loksins. Ég er nú bara orðin nokkuð spennt fyrir skólanum, það verður gaman að takast á við eitthvað nýtt og krefjandi.

Kv. H


Ameríka.. land öfganna.. neiiihh

jæja, við erum búin að vera hérna í nokkra daga í Cape Cod village f. utan Boston.

Flugið og ferðalagið hingað gekk rosa vel. við þurftum reyndar að taka leigubíl á leiðarenda þar sem það var seinkun á fluginu okkar og bílaleiguþjónustan var lokuð þegar við komum. það reddaðist þó allt á endanum.

Í dag fórum við í Cape Cod mall.. ferlega gaman og helling verslað enda STÓR familía hér á ferð og allt í útsölum eins og ameríkönum er einum lagið. Skruppum svo í matvörubúð á leiðinni heim og maður var alveg bara í menningarsjokki eftir það.. það er ALLT hægt að kaupa hérna.. það var meira að segja sér beikondeild.. eruði að grínast.. haha

en jæja.. ætlum að fara að borða kvöldmat..

hilsen from Emúríka


Kærleiksþjónn??

Eftir langan vinnudag skellti ég mér í tölvuna (að vanda) og sá þá mér til mikillar gleði að búið er að samþykja umsóknina mína í Háskóla Íslands. Já, ég er sumsé að fara í BA nám í djáknafræðum í haust. Halo

Mér finnst svolítið fyndið að hugsa til þess að ég eigi ef til vill eftir að vera kærleiksþjónn, en það er einmitt það sem djáknaþjónustan er kölluð, kærleiksþjónusta - og með henni fylgir djákninn því fordæmi sem Kristur sýndi þegar hann kraup niður, gerðist þjónn og þvoði fætur lærisveina sinna. Já sæll, þið getið gleymt því að ég ætli að fara að þrífa á ykkur táfílurnarW00t -djók..

Annars leggst þetta barasta vel í mig allt saman, finnst kúrsarnir núna í haust ekkert mest spennandi svona í fyrstu en held að þetta skáni strax á annarri önn svo maður verður bara að lifa það af.

Djákninn á Myrká kveður í bili


Þvermóðskupúkinn á Mallorca

Ég er svo mikill þrjóskupúki að það er ekki eðlilegt... og það sem verra er, ég veit vel af því en ræð samt sem áður engann veginn við mig þegar ég er í ham... ef þið eruð í náðinni þá fáið þið allt í details þegar ég kem heimWink 

Annars er alles gutes hérna, við fórum á götumarkaðinn í Palma í dag.. rosa gaman, familían prúttaði liðið upp úr skónum að sjálfssögðu, ég keypti mér t.d. bongotrommur. Seinna í dag skoðuðum við svo kirkjuna í Palma sem er víst fræg. Hún kemmst þó ekki hálfkvist upp í að vera fallegri en Dómkirkjan í Köln.. ohh Heiða þýska

þar hafið þið það, ég er ætla að fá mér göngutúr og fara svo að sofa, reyna að sofa þessa fílu úr mér.

 

over and all the way out to Mallorca..


Gledilega thjódhátíd :)

Hér á Mallorca er allt med kyrrum kjorum, enginn Ísbjorn og ekki neitt :)

Vid erum oll a leidinni í westernpark ásamt odrum íslendingum á Mallorca og aetlum thar ad halda hátídlega upp á thjodhátídardaginn okkar.

Annars er allt bara ferlega kósý.. vedrid er very nice, stundum meira ad segja einum og nice. Vid fjolskyldan og Linda og fjolskylda leigdum okkur í gaer hjól og hjóludum medram strondinni, ferlega kósý.

ég vona ad thid njotid dagsins, thad aetla eg sko svo sannarlega ad gera :)

 

kv. Heida


Mallorca dagur eitt

Hæ hæ,

Jæja, það rættist aldeilis úr rigningunni sem ég sagði ykkur frá í gær. Þegar ég vaknaði kl: 09:00 í morgun skein sólin skært inn um gluggann á hótelherberginu okkar. Að sjálfssögðu dreif ég mig í bikiníið og skellti mér út á bekk með ipodinn í annarri og olíuna góðu í hinni.

Annars er ég bara búin að hafa það gott í dag og tana mig í drasl... og ég held svei mér þá að brunkutöflurnar séu að virka.. I swear it... Cool

Í kvöld var svo Elviskvöld í hótelgarðinum. Fyrst var kvöldmatarhlaðborð og svo Elvis show.. svaka stuð.

Á morgun er stefnan svo tekin á ströndina, og hver veit nema maður leigi sér jet-skii eða eitthvað skemmtilegt..

Góðar nætur og átján dætur..

 Heiða 

 


Mallorca beibí :)

Jaja, tha erum vid stórfjolskyldan komin til mallorca.. á móti okkur tók thessi líka svakalega rigning og thrumur og eldingar.. jeijj

Vorum ad koma upp a hótel, búin ad fínpússa svaedid. Thad litur amk allt mjog vel út svona flótt á litid, hótelid geggjad svo er bara ad vona ad sólin láti sjá sig í fyrramáld :)

 

Heida... ég fer í fríid, ég fer í fríid, ég fer í fríid...


Hvatning

Ég fékk að gjöf  ljóðabók um daginn og kort með sem á stóð.. takk fyrir að leifa mér að taka þátt í lífi þínu, eitt agnarsmátt brot úr eilífð. En titill bókarinnar ber einmitt þetta skemmtilega og þýðingarmikla heiti, Agnarsmá brot úr eilífð og er höfundurinn Ólafur Ragnarsson.

Ég tók mig til og gluggaði aðeins í bókina í kvöld og rakst m.a. á þetta fallega ljóð sem mig langar að deila með ykkur:

Hvatning

Látt‘ ekki daga lífs þíns

lit sínum glata,

þótt birtur þér hafi verið

bráðþungur dómur. 

Þótt lækning sé engin í augsýn

er aldrei að vita

hvað framtíð þér færir

ef fast þú heldur í vonir.31874_23565

Látt´ ekki leifturmyrkva í sinni

loka þér sýn fram á veg

og hvorki gæfu né gleði

úr greipum þér smjúga.

Á þetta líttu sem áskorun nýja,

átak sem styrkir,

vænlega reynslu sem veitir

þér viðbótarþroska.

 Líttu á fólkið þitt ljúfa

og lífsglaða vini,

fjársjóð af minningum fögrum,

fögnuð andrár og daga. 

Lífið þú hefur í hendi

og höndlar það enn.

Staðfastur njóttu og sterkur

Þeirra stunda sem gefast.

Kveðja..

Heiða Björk

 

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband